FjFt9RnA.jpeg

2 daga UNGLINGAnámskeið í förðun

Á 2 daga förðunarnámskeiði Make-Up Studio Hörpu Kára læra nemendur að farða eigið andlit með leiðbeiningum förðunarfræðinga.

Verð: 45.900 kr.

Innifalið í verði er veglegur vörupakki og burstasett að andvirði 35.000kr.
Hægt er að skipta greiðslum niður í allt að 36 mánuði.

 

 

NÆSTu NÁMSKEIÐ:

29.-30. október 2022

Kennt er laugardaga og sunnudaga frá klukkan 11:00 - 15:00.

 

 

Áhersla er lögð á faglega kennslu og allir kennarar sem að koma að náminu hafa mikla reynslu í faginu. Kennarar hafa sína sérstöðu en eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á sínu sviði. Á meðan á námskeiðinu stendur læra nemendur að farða sitt eigið andlit eftir óskum hvers og eins. Nemendur fá veglegan vörupakka og burstasett auk þess að fá afnot af förðunarbókinni Andlit eftir Hörpu Káradóttur eiganda Make-Up Studio Hörpu Kára.


Á námskeiðinu verður farið yfir húðumhirðu fyrir allar húðgerðir og hvernig hægt er að sníða hana að þínum þörfum. Nemendur læra ljómandi dagförðun, létta kvöldförðun og grunntækni í vinsælustu förðunum í dag. Nemendur hafa aðgang að vörum skólans en eru einnig hvattir til að mæta með sínar eigin vörur til að læra betur á þær. Að námskeiði loknu fá nemendur viðurkenningu frá
Make-Up Studio Hörpu Kára.

Í vörupakkanum má finna vörur frá okkar uppáhaldsmerkjum.