2 VIKNA FÖRÐUNARNÁMskeið
Á námskeiðinu er farið yfir öll helstu grunnatriði í förðun og kenndar eru vinsælustu farðanirnar í dag. Kennt er 3 daga vikunar, mánudag-miðvikudags, í dag- eða kvöldskóla. Að námskeiði loknu öðlast nemendur viðurkenningu frá Makeup Studio Hörpu Kára.
Verð: 130.000 kr. Hægt er að skipta greiðslum niður í allt að 36 mánuði. Innifalið í verði er fullbúið burstasett og vörupakki að andvirði 50.000 kr.
ATH! Mörg stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðlu, kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
NÆSTa NÁMSKEIÐ:
21. nóv - 30. nóv 2022
Boðið er upp á nám í bæði dagskóla ( kl. 9:00-12:00) og kvöldskóla (kl. 19:00 - 22:00)
Áhersla er lögð á faglega kennslu og allir kennarar sem að koma að náminu hafa mikla reynslu í faginu. Kennarar hafa sína sérstöðu en eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á sínu sviði. Á meðan á náminu stendur læra nemendur að farða sitt eigið andlit eftir óskum hvers og eins. Nemendur fá veglegt burstasett og burstatösku ásamt vörupakka að andvirði 50.000 kr. Námskeiðið er einnig tilvalið fyrir förðunarfræðinga sem vilja kynnast nýjungum og læra helstu trendin í förðunarheiminum í dag.
Helstu áherslur
Húð
Húðumhirða, húðtegundir, húðtónar, litaleiðrétting.
Val á farða, hyljara og púðri.
Áferðir, mismunandi áferðir eftir tilvikum.
Andlitsföll og andlitsskyggingar (highlight & contouring.)
Augu og varir
Augabrúnir
Augnskyggingar, mismunandi augnumgerðir.
Eyeliner, mismunandi form.
Maskari og bretting augnhára.
Varir, mismunandi form.
Mismunandi farðanir
Ljómandi húð
Monochrome förðun og ‘‘fullkomnu nude varir’’
Klassisk augskygging, eyeliner og augnhár
Andlitsskyggingar og sterkar varir
Smokey Eyeliner
Smokey förðun
Soft Glam förðun
Soft Cut Crease
Halo förðun
Á meðan á namskeiðinu stendur hafa nemendur aðgengi að veglegu vörukitti skólans og hvetjum við nemendur til að prófa sig áfram með fjölbreytt úrval af frábærum snyrtivörum.